06.12.1973
Sameinað þing: 31. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1122 í B-deild Alþingistíðinda. (1018)
43. mál, samgönguáætlun fyrir Norðurland
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Ég hafði kvatt mér hljóðs undir umr. um þetta mál fyrir nokkrum dögum vegna nokkurra ummæla, sem féllu hjá hæstv. forsrh., sem því miður er ekki staddur hér í dag. Hæstv. ráðh. fann að því, að þessar umr. beindust í þann farveg, sem helst mætti líkja við framboðsfund, og taldi, að ýmislegt af því, sem hér væri sagt, mætti bíða framboðsfunda fyrir næstu kosningar á Norðurlandi. Hæstv. ráðh. gerði sig þó sekan um það að tala sjálfur í þeim tón, sem hann vildi ávíta aðra fyrir, og var raunar sá hinn eini af ræðumönnum, sem talaði eins og um framboðsfund væri að ræða.
Hæstv. ráðh. taldi ekki ástæðu til þess fyrir þm. Norðlendinga að finna að því, hvernig staðið hafi verið að þessari áætlun, og mótmælti því, að um vanefndir hefði verið að ræða í sambandi við hana. Hæstv. ráðh, rakti það, að nú væri meira unnið að samgöngubótum á Norðurlandi heldur en oft hefði verið gert áður, og skal því síst mótmælt. Það þarf heldur engan að undra, að svo sé, þegar farið er að vinna að þessum framkvæmdaþætti eftir þeirri áætlun, sem hér er til umr., — áætlun, sem gerir ráð fyrir því, að varið sé til þessara framkvæmda á milli 100 og 200 millj. kr. á ári til viðbótar við fé vegáætlunar. Það kom því engum spánskt fyrir sjónir, þó að nú kæmist meira í verk heldur en áður hefði verið gert í þessu efni.
En þrátt fyrir það vil ég aðeins til þess að orðlengja þetta ekki mjög með hliðsjón af því, að hæstv. ráðh. er ekki viðstaddur, minna á það, að þegar gildandi vegáætlun var afgreidd á Alþ. 18. maí 1972, þá var það samþykkt hér á hinu háa Alþ., að varið skyldi til samgönguáætlunar Norðurlands 120 millj. kr. á árinu 1972. Þær vanefndir, sem ég talaði um, eru í því fólgnar, að ekki fengust þessar 120 millj. kr., sem Alþ. hafði ákveðið til þessa verks, heldur einungis 100 millj. kr. Ef hæstv. ráðh. vill mótmæla því, að hér sé um vanefndir að ræða, þá hann um það, en þetta tel ég vanefndir.
Ég skal svo ekki lengja þessar umr. frekar, einungis vænta þess, að meðferð þessa máls verði með þeim hætti nú, að áætlun verði samin fyrir allt áætlunartímabilið, að hún liggi fyrir á framhaldsþinginu eftir áramótin og að þm. Norðurlands fái alla aðstöðu til þess að fylgjast með því, hvernig þessi áætlun verður samin.