13.12.1973
Efri deild: 34. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1345 í B-deild Alþingistíðinda. (1154)
152. mál, tollskrá o.fl.
Heilbr.- og trmrh. (Magnús Hjartansson):
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Ég hef ekki fylgst með umr. hér í hv. þd. um þetta mál.
Ég heyrði bara mál hv. síðasta ræðumanns, sem taldi, að það væri ekki unnt að afgreiða þetta mál fyrir jólaleyfi. Ég teldi það ákaflega illa farið, ef ekki reyndist unnt að afgreiða þetta mál fyrir jólaleyfi. Eins og hv. þm. vita, lækka tollar á innfluttum iðnvarningi sjálfkrafa núna um næstu áramót, og ég tel, að það væri ákaflega alvarlegt mál, ef íslenskur iðnaður yrði að búa við það að vera með óbreytta tolla á sínum aðföngum í — ja, við skulum segja — tvo mánuði þar á eftir. Það er reynsla af þessari hugmynd, sem hv. þm. minntist á, að endurgreiða, og sú reynsla er alveg afleit, að því er iðnrekendur tjá mér. Þeir segja, að þessu hafi fylgt mikil skriffinnska og mikil vandkvæði, og þeir telja, að þeir hafi ekki fengið endurgreidda þá fjármuni, sem þeir hafi raunverulega átt rétt á. Ég tel, að hér sé um að ræða ákaflega mikið hagsmunamál fyrir íslenskan iðnað, og ég vil fyrir mitt leyti óska þess mjög eindregið, að hv. þm. freisti þess að afgreiða málið fyrir jól.
Ég skil ákaflega vel þá gagnrýni, sem fram kemur, að þetta mál skuli koma hér fyrir svona seint. Það er nánast ofætlun að ætlast til þess, að þm. afgreiði mál af þessu tagi á svona stuttum tíma. En ég vildi mælast til þess samt, að menn hafi í huga hagsmuni þessa atvinnuvegar. Ég tel að það væri ákaflega mikið áfall fyrir hann, ef ekki væri hægt að leysa þennan vanda. Þarna geta verið ýmis smærri álitamál, eins og hv. þm. minntist á, en ég vona, að menn líti fram hjá slíkum smærri ágreiningsefnum til þess að láta þau engan veginn torvelda það, að hægt sé að framkvæma þessa breytingu, sem ég hygg, að menn séu almennt sammála um.
Það hefur einnig verið almennt viðhorf allra flokka, að þegar þær tollabreytingar, sem fylgdu samningunum við EFTA, kæmu til framkvæmda, yrði skerðingin á tekjum ríkissjóðs tekin í formi söluskatts. Um þetta hefur ekki verið ágreiningur á milli hv. þm.
Að öðru leyti vil ég ekki orðlengja um þetta, en aðeins hera fram þá ósk, að þm. íhugi gaumgæfilega hvort þeir sjái sér ekki fært að leysa málið fyrir jól, séð frá hagsmunum íslensks iðnaðar.