13.12.1973
Efri deild: 34. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1355 í B-deild Alþingistíðinda. (1162)

151. mál, skráning og mat fasteigna

Axel Jónsson:

Herra forseti. Það er aðeins örstutt ábending til þeirrar n., sem fær þetta mál til meðferðar, hvort n. vildi ekki athuga, að það yrði kveðið svo á, að matsmenn yrðu staðsettir þar, sem skrifstofur landshlutasamtakanna eru. Þetta er eitt af þeim verkefnum, sem falla mjög innan ramma þeirra starfsemi. Án þess að ég sé að segja, að það sé nauðsyn á, að reynt sé að koma tengslum á milli, þá held ég þó, að það mundi verða til góðs fyrir framkvæmdina.