13.12.1973
Neðri deild: 40. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1385 í B-deild Alþingistíðinda. (1195)

2. mál, húsbyggingar á vegum Viðlagasjóðs

Frsm. (Hannibal Valdimarsson) :

Herra forseti. Þetta frv. til 1. um húsbyggingar á vegum Viðlagasjóðs eða Vestmannaeyjakaupstaðar, er til staðfestingar á brbl. og hefur farið í gegnum hv. Ed. Frv, var rætt á fundi í félmn., og voru allir nm. sammála því að afgreiða frv. óbreytt. N, leggur sem sé til, að frv. þetta verði samþ. óbreytt.