13.12.1973
Neðri deild: 40. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1418 í B-deild Alþingistíðinda. (1209)

160. mál, almannatryggingar

Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):

Herra forseti. Því miður get ég nú ekki gefið fullnægjandi upplýsingar um það, sem ég var spurður af síðasta hv. ræðumanni. Mér er þó kunnugt um, að málið hefur verið í undirbúningi og það hefur verið rætt í ríkisstj., og ég á satt að segja von á því, að frv. um þessa endurskoðun verði lagt fyrir Alþ. nú innan skamms. Mér er kunnugt um, að hæstv. forsrh. hefur haft áhuga á því að koma þessu frv. fram, en ég get ekki því miður sagt meira en þetta um málið.