14.12.1973
Efri deild: 36. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1440 í B-deild Alþingistíðinda. (1242)

94. mál, lyfjaframleiðsla

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Ég kveð mér nú aðeins hljóðs til þess að óska eftir því, ef formaður heilbr.- og trn. treystir sér ekki til að svara þeim fsp., sem hér hafa komið fram, sem vel getur verið eðlilegt, að ekki sé í verksviði hans, þá sé umr. frestað, þar til ráðh. hefur að stöðu til að sitja fund d. og hlusta á umr. og fjalla um málið.