14.12.1973
Neðri deild: 41. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1451 í B-deild Alþingistíðinda. (1275)

39. mál, veðdeild Landsbanka Íslands

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Veðdeild Landsbanka Íslands fékk heimild til þess 1965 að gefa út bankavaxtabréf allt að 100 millj. kr. Þessi heimild var hækkuð um 100 millj. kr. 1971, og þar sem hún hefur nú verið notuð að fullu, er með þessu frv. lagt til að hækka hana um 100 millj. kr., úr 200 millj. í 300 millj.

Fjh.- og viðskn. hefur athugað frv. og leggur til, að það verði samþykkt.