18.12.1973
Sameinað þing: 38. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1538 í B-deild Alþingistíðinda. (1402)

392. mál, tafir á lagningu rafmagns á sveitabæi

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Herra forseti Ég kem hér upp til að þakka hæstv. iðnrh. fyrir svörin. Ég get vel unnað hv. 1. þm. Sunnl. þess, að fá smávegis átyllu til að afsaka fyrrv. ríkisstj. og koma smáhöggi á núv. ríkisstj. En ég held, að það sé ljóst, að það varð mikil hröðun á rafvæðingu við tilkomu þessarar ríkisstj. Mér er ljóst, að það, sem hér er um að ræða, eru framkvæmdaatriði, sem hægt hefði verið með meiri fyrirhyggju af viðkomandi stofnun að komast hjá, og ég treysti því, að slíkt muni ekki endurtaka sig.