18.12.1973
Neðri deild: 47. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1583 í B-deild Alþingistíðinda. (1466)

69. mál, löndun á loðnu til bræðslu

Frsm. (Garðar Sigurðsson) :

Herra forseti, Sjútvn. hv. d. hefur athugað þetta frv. á fundum sínum. Þetta frv. er líkt því frv., sem var hér á ferðinni á síðasta þingi, með nokkrum breyt., sem loðnunefnd hefur lagt til, að gerðar verði eftir þeirri reynslu, sem lögin hafa fengið á loðnuvertíðinni. N. leggur til, að frv. verði samþ. óbreytt.