19.12.1973
Sameinað þing: 39. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1624 í B-deild Alþingistíðinda. (1484)

1. mál, fjárlög 1974

Eysteinn Jónsson:

Herra forseti. Það er aðeins til þess að mæla nokkur orð fyrir brtt, á þskj. 288, fyrri brtt., en till. fjallar um það, að starfsfé þingflokkanna hafi sama launagreiðslugildi og það fé hafði 1972, fyrsta heila árið, sem þetta starfsfé var veitt. Frekari skýringa við till. er ekki þörf.