20.12.1973
Sameinað þing: 40. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1680 í B-deild Alþingistíðinda. (1546)

1. mál, fjárlög 1974

Magnús Jónsson:

Herra forseti. Ég tel nauðsynlega þá skattalækkun, sem mundi leiða af þessari till. Hins vegar, eins og ákvæðin um skattvísitölu eru í skattalögum, tel ég ekki auðið að samþykkja þetta með þessum hætti, þar sem fjárlög geta ekki breytt ákvæðum þeim, sem skattalögin byggjast á, og get ég af þeim sökum ekki tekið þátt í afgreiðslu málsins, þótt ég sé því efnislega sammála, sem í því felst, og greiði ég því ekki atkv.