20.12.1973
Neðri deild: 51. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1686 í B-deild Alþingistíðinda. (1572)

Þingfrestun

Forseti (Gils Guðmundsson) :

Þetta verður síðasti fundur deildarinnar nú fyrir þinghlé. Ég vil af því tilefni þakka öllum hv. þdm. mjög gott samstarf það sem af er þessu þingi. Ég óska þeim og fjölskyldum þeirra svo og starfsfólki Alþingis gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Ég læt í ljós þá ósk, að við megum öll hittast heil, þegar Alþingi tekur aftur til starfa á nýju ári.