20.12.1973
Neðri deild: 51. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1686 í B-deild Alþingistíðinda. (1573)

Þingfrestun

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Þar sem þetta er síðasti fundur hv. þd. fyrir jólaleyfi þm., leyfi ég mér fyrir hönd okkar þdm. að færa hæstv. forseta innilegar jólaóskir og óskir um farsæld á komandi ári. Ég vil jafnframt nota þetta tækifæri til þess fyrir hönd þdm. að þakka hæstv. forseta fyrir góða og farsæla fundarstjórn það sem af er þessu þingi. Við hugsum gott til samstarfs við hæstv. forseta, þegar þd. hefur störf að nýju á nýju ári.

Ég endurtek óskir okkar þm. til hæstv. forseta um gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári og bið hv. þdm. að taka undir þessar óskir með því að rísa úr sætum. - [Þdm. risu úr sætum.]