21.12.1973
Sameinað þing: 42. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1687 í B-deild Alþingistíðinda. (1576)
Þingfrestun
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Fyrir hönd okkar alþm. vil ég þakka hæstv. forseta Sþ. góðar óskir okkur til handa. Ég þakka honum fundarstjórn og samstarf það sem af er þessu þingi og óska honum gleðilegra jóla og nýárs. Ég vona, að við megum öll hittast hér heil til starfa á næsta ári. Ég bið hv. alþm. að taka undir þessar óskir með því að rísa úr sætum. — [Þm. risu úr sætum.]