21.12.1973
Sameinað þing: 42. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1688 í B-deild Alþingistíðinda. (1579)

Þingfrestun

Forsrh. (Ólafur Jóhannesson):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svo hljóðandi bréf: „Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 94. löggjafarþings, frá 21. des. 1973 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 21. jan. 1974.

Gjört í Reykjavík, 19. desember 1973.

Kristján Eldjárn.

Ólafur Jóhannesson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþ. lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþ., 94. löggjafarþings, er frestað frá 21. des., og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 21. jan. 1974.

Leyfi ég mér að árna hv. alþm. og starfsmönnum þingsins svo og landslýð öllum gleðilegra jóla og farsæls nýárs.