22.01.1974
Sameinað þing: 44. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1708 í B-deild Alþingistíðinda. (1598)
Umræður utan dagskrár
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Ég varð satt að segja ekki mjög miklu nær af þessum svörum. Það kom fram, að till. Bandaríkjamanna hefðu verið afhentar utanrmn. sem trúnaðarmál. En ég veit ekki betur en hv. 3. þm. Vestf., Hannibal Valdimarsson, hafi gert nokkra grein fyrir till. Bandaríkjamanna á þingmálafundi á Ísafirði, svo að það er til athugunar, hvort ekki væri rétt að láta ekki einungis Ísfirðinga vita um þetta, heldur þjóðina alla.
Ég vil í sambandi við þá óvissu, sem ríkir um það, að ríkisstj. beri fram till. sínar í málinu, benda á, að nú fer að styttast kjörtímabilið og það þarf heilt ár til að gefa Bandaríkjamönnum tækifæri til að koma berliði sínu á brott, ef samningum verður sagt upp, þannig að ég fæ ekki annað séð en að eftir því sem tíminn liður verði minna og minna svigrúm til að gera nokkuð í málinu og e. t. v. skapast það ástand í þjóðfélaginu, að stjórnarflokkarnir ráða ekki við málið lengur. Þess vegna vil ég brýna fyrir stjórninni, að flýta þessu máli og gera nú loksins eina tilraun til þess að standa við eitt mikilvægt atriði í málefnasamningnum.