22.01.1974
Sameinað þing: 44. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1715 í B-deild Alþingistíðinda. (1608)
161. mál, endurskoðun olíusölunnar
Benedikt Gröndal:
Herra forseti. Hv. 4. þm. Norðurl. v. sagði í ræðu sinni, að ekki væri ljóst hvað Alþfl. vildi í olíumálunum. Ég leyfi mér að halda því fram, að hv. þm. hljóti að tala gegn betri vitund, því að hver sá, sem nokkuð hefur fylgst með þessum málum undanfarin ár, hlýtur að vita, að stefna Alþfl. er þjóðnýting olíuverslunarinnar. Um það hefur flokkurinn margoft gert ályktanir, og um það hefur hann flutt bæði frv. og till. hér á Alþingi. Hins vegar er fengin nokkuð löng reynsla fyrir, að því virðist fjarri, að það sé meirihluti á Alþingi fyrir slíkri stefnu. Af þeim ástæðum höfum við líka reynt að flytja till., sem ganga ekki eins langt, í þeirri von að ná einhverju fram. Þetta ætti hv. þm. og hverjum sem vita vill að vera algerlega ljóst.
Ég tel, að olíukreppan gefi tilefni til að íhuga þessi mál á nýjan leik. Ef hér er meiri hluti á móti því að athuga nokkrar þjóðnýtingaleiðir, mætti t. d. spyrja hæstv. ríkisstj., hvort nú sé ekki rétti tíminn til að reyna að hefja tilraunir til að sameina olíufélögin eins og flugfélögin. Ætli þjóðin mundi ekki telja, að það væri þó spor í rétta átt, ef í staðinn fyrir þrjú skrifstofubákn kæmi eitt eða í staðinn fyrir þrjú dreifingarkerfi um landið kæmi eitt? Það væri brjáluð þjóð, sem héldi uppi þreföldu kerfi á tímum eins og nú eru í olíu- og orkumálum. Er því um ýmsar leiðir að ræða, sem gætu orðið til endurbóta, þó að ekki sé fylgi við fullkomna þjóðnýtingu olíuverslunar.
Varðandi síðustu orð hæstv. viðskmrh. vil ég taka það skýrt fram, að það var alls ekki ætlun frsm., bv. 1. landsk., að varpa neinni rýrð á olíuviðskipti okkar við Rússa, fjarri því. Við viðurkennum alveg eins og þeir og höfum gert það í verki í ríkisstj., að þessi viðskipti hafa verið hagkvæm. Hins vegar er eðlilegt, þegar menn sjá, hvað er að gerast í heiminum, að þeir bendi á alla hugsanlega atburði, sem gætu komið fyrir. Í þessum efnum verður lítil þjóð að hugsa fyrir hinu ótrúlegasta, jafnvel þótt ekki séu líkur á, að neitt slíkt gerist, og vera við öllu búin. Það var hugsun hv. fyrirspyrjanda.