30.10.1973
Sameinað þing: 9. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 223 í B-deild Alþingistíðinda. (162)

342. mál, umsjónar- og eftirlitsstörf í heimavistarskólum

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson) :

Herra forseti. Eins og ég taldi, að kæmi fram í svari mínu við fsp., er unnið að endurskoðun greiðslureglnanna og við það miðað, að þær breytingar, sem samkomulag kann að nást um, gildi fyrir það skólaár, sem nú er að hefjast. Og ég get fullvissað hv. þm. um, að mér er síst minna áhugamál en honum, að þær reglur liggi fyrir sem allra fyrst.