29.01.1974
Sameinað þing: 47. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1836 í B-deild Alþingistíðinda. (1697)

401. mál, litasjónvarp

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):

Herra forseti. Svarið við þeirri spurningu hv. 5. þm. Vesturl., hvort ég hafi samþykkt þær fyrirætlanir Bandaríkjamanna að hefja sjónvarpsútsendingar í litum frá Keflavíkurflugvelli í júní, er það, að hið fyrsta, sem ég vissi um þetta mál. var, þegar ég sá Alþýðublaðið í morgun. Sömuleiðis spurði hv. þm., hvort ætti að líða Keflavíkursjónvarpinu að efla sig á þennan hátt til samkeppni við íslenska Ríkisútvarpið. Svar mitt við þeirri spurningu er, að slíkt má ekki líða og verður ekki liðið.