05.02.1974
Sameinað þing: 50. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1995 í B-deild Alþingistíðinda. (1799)
193. mál, eignaraðild útvegsmanna að fiskiskipaflotanum
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Spurt er í fyrsta lagi: „Hver var vátryggingarfjárhæð alls íslenska fiskiskipaflotans 31. des. 1973?“ Ég hef fengið þær upplýsingar, að vátryggingarverð það, sem miðað er við í vátryggingasjóði fiskiskipa, sé fyrir samtals 935 skip, alls rúmlega 17.9 milljarðar kr. eða rétt tæpir 18 milljarðar. Þetta er sem sagt vátryggingarverð svo að segja alls fiskiskipaflotans. Það eru ekki, held ég, fyrir utan þetta nema örfáir smábátar.
Þá kemur síðari spurningin, sem er heldur verri viðureignar og býsna sérkennileg, en þar er spurt: „Hve hárri fjárhæð samtals námu skuldir meðlima L.Í.Ú. 31. des. 1973, sem tryggðar voru með veðum í sama fiskiskipaflota og nefndur er í fyrri spurningunni?“ Þessu er ekki hægt að svara, nema þá að miklu lengri tími fáist til undirbúnings en hér hefur verið veittur, og reyndar þarf þá að leita eftir heimildum hjá aðilum, sem við ráðum ekki fyllilega yfir, því að spyrja um skuldir einstakra meðlima í hinum ýmsu félagssamtökum í landinu er í rauninni ekki frambærilegt hér á Alþ., nema þá viðkomandi félagssamtök hafi skrá um slíkt, en L.Í.Ú. telur sig ekki hafa skrá yfir þetta. Ég get því ekki svarað þessari spurningu og tel hana líka þess eðlis, að það sé í rauninni ekki hægt að ætlast til þess, að henni sé svarað hér.
En það er hægt að gefa hér nokkrar almennar upplýsingar, sem svara að einhverju leyti því, sem hv. fyrirspyrjandi er að leita eftir. En það varðar þau lán, sem hvíla á fiskiskipaflotanum, stofnlán, en því miður er ekki heldur hægt að gefa hér upplýsingar um annað en bein stofnlán. Hér er um einn aðalstofnlánasjóð að ræða, sem lánar út á fiskiskipaflotann, þ.e. Fiskveiðasjóð Íslands. Um síðustu áramót voru lán hans til fiskiskipaflotans samtals 5.2 milljarðar. Auk þess höfum við svo tölur yfir það, að Byggðasjóður og Atvinnuleysistryggingasjóður, að nokkru leyti í nánu sambandi við starfsemi Byggðasjóðs hafa veitt lán upp á 530 millj. kr. Hér er því um að ræða föst stofnlán til þessa skipaflota upp á rúmlega 5.7 milljarða. En önnur lán, sem hvíla á þessum skipaflota, er afar erfitt að segja um, því að það væri mikið verk að tína saman allar upplýsingar um áhvílandi skuldir allra skipa í landinu í öllum lánastofnunum og engin leið að koma því við.
Þetta er sem sagt það, sem ég get gefið upplýsingar um, og að þessu leyti er hægt að svara spurningum hv. fyrirspyrjanda, en um frekara svar getur ekki verið að ræða að svo komnu máli.