05.02.1974
Sameinað þing: 50. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 1997 í B-deild Alþingistíðinda. (1803)
403. mál, skipun formanns stjórnarnefndar ríkisspítalanna
Fyrirspyrjandi (Bjarni Guðnason):
Herra forseti. Þessi fsp. lætur lítið yfir sér. Það er fsp. til heilbrrh. um skipun formanns stjórnarnefndar ríkisspítalanna, og hljóðar svo:
„Hvaða rök liggja til þess, að ráðuneytisstjóri í heilbrrn. er skipaður form. stjórnarnefndar ríkisspítalanna?“
Ástæðan fyrir þessu er sú, að ég fæ ekki séð, að það sé eðlilegt, að ráðuneytisstjóri í heilbrrn. sé jafnframt form. stjórnarn. ríkisspítalanna, vegna þess að rn. er ætlað að hafa eftirlit með þeim stofnunum, sem tilheyra heilbrrn., og því tel ég óheppilegt, að sjálfur ráðuneytisstjórinn fari með formannsstöðu í stjórnun ríkisspítalanna, m.ö.o. hafi eftirlit með sjálfum sér, ef ég orða þetta einfaldlega. Þetta er algerlega ópersónulegt atriði, sprottið af því, að ég tel, að það megi ekki verða of mikill samdráttur í embættismannakerfinu, og ef hugmyndin er sú, að rn. og þá auðvitað forstöðumaður rn. eigi að hafa eftirlit með þeim stofnunum, sem heyra undir rn., þá segir sig sjálft, að það er mjög vafasamt, að ráðuneytisstjóri sé jafnframt forstöðumaður fyrir ríkisstofnun, sem heyrir undir hans eigið ráðuneyti. — Þetta er ástæðan fyrir því, að ég ber fram þessa spurningu.