30.10.1973
Sameinað þing: 10. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 240 í B-deild Alþingistíðinda. (189)
Umræður utan dagskrár
Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson) :
Herra forseti. Hér hafa verið á dagskrá fram að þessu í dag 20 fsp., ýmsar þeirra í mörgum liðum. Það voru aðeins 6 fsp., sem komust að í dag, 14 verða að bíða. Þessar fsp. eru allar bornar fram í samræmi við ákvæði þingskapa, og er ætlast til þess, að við ráðh. öflum okkur gagna og skýrslugerða um fjölmörg atriði, og við teljum það að sjálfsögðu ekki eftir okkur. Ég tel þetta vera mjög mikilvægan þátt í störfum Alþ. Hinu vil ég beina til hv. alþm. og hæstv. forseta, hvort það eru rétt vinnubrögð, að auk þess standi menn upp utan dagskrár til að bera fram fsp., sem mjög auðvelt væri að bera fram á formlegan og þinglegan hátt.
Eins og hv. þm. Matthías Bjarnason gat um, hafa þessir miklu erfiðleikar fyrir vestan staðið síðan 22. sept. Ef þessi hv. þm. hefði viljað, að lögð yrði fram skýrsla um þessi vandkvæði á þinginu, hefði honum verið í lófa lagið að bera fram fsp. á þinglegan hátt fyrir löngu, og ég verð að líta á það sem hreinlega misnotkun á fsp.-aðstöðunni, ef einstakir þm. geta hlaupið hér upp og óskað eftir svari með engum fyrirvara og án þess að tími sé til að kanna eitt eða neitt, meðan aðrir þm. verða að biða kannske vikum saman eftir að fá svör við fsp., sem eru bornar fram á þinglegan hátt.
Hitt er mér alveg ljóst, að þarna er um að ræða alvarlegt vandamál á Vestfjörðum og hefur verið það lengi. Hv. þm. bar fram harðar ásakanir á Rafmagnsveitur ríkisins um vítavert kæruleysi og sinnuleysi af þeirra hálfu. Ég tel ekki rétt, að um það séu felldir dómar hér á þingi, nema Rafmagnsveitur ríkisins hafi þá tækifæri til að bera fram sín sjónarmið í þessu efni, og ég skal að sjálfsögðu gera ráðstafanir til þess, að formleg svör fáist við þessu frá þeirra sjónarhóli einnig, og síðan geta menn þá lagt á það sinn dóm.
Hitt er alveg ljóst, að þarna verður að vera til betri viðgerðaaðstaða en verið hefur. Það er rétt, að þessa viðgerðarmenn hefur orðið að sækja til Danmerkur, og ég tel það í sjálfu sér mjög óeðlilegt, að þannig skuli vera ástatt hér. Það er einn arfurinn, sem við höfum frá 12 ára viðreisnarstjórn, þar sem þessi hv. þm. var ötull stuðningsmaður og minntist aldrei á þetta mál. En að sjálfsögðu verður að kanna það, hvort hér er verkefni til að halda uppi starfsemi af þessu tagi. Það þarf ekki aðeins að mennta menn, þarna þarf að vera búnaður af ýmsu tagi.
Hér hafa komið upp mjög brýn vandamál á þessu hausti, eins og menn vita. Ég held, að engum sem blandist hugur um, að það hafi verið ákaflega brýnt að leggja jarðstrenginn út í Vestmannaeyjar, þegar í ljós kom, að fólkið var reiðubúið að flytjast þangað í jafnríkum mæli og raun hefur sannað. Og í sambandi við strenginn yfir Elliðavog, þá held ég, að öllum sé í fersku minni, að í ofviðrinu mikla í haust slitnaði þar og var mikil hætta á því, að þarna yrði um ákaflega stórfelldan kostnað að ræða, og þess vegna var ráðist í það verkefni. Hitt er ég alveg sammála hv. þm. um, að ástand eins og það, sem hefur verið á Vestfjörðum, er óþolandi með öllu, og ég skal með ánægju kanna, hvað hægt er að gera í því máli á raunsæjan hátt. Þá er ég fús til að greina frá því hér á Alþ., ef það mál er vakið á formlegan hátt í samræmi við þingsköp. En ég hef ekki hér tiltæk gögn til þess að svara þessum hv. þm. á stundinni um þessi atriði.