19.02.1974
Sameinað þing: 57. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2254 í B-deild Alþingistíðinda. (2019)
Umræður utan dagskrár
Ragnhildur Helgadóttir:
Herra forseti. Í gær urðu í Nd. Alþ. umr. utan dagskrár vegna ræðu, sem hæstv. ráðh. Magnús Kjartansson flutti á fundi Norðurlandaráðs s.l. sunnudag. Ræðu þessa fékk ég í morgun frá hæstv. forsrh., nokkru eftir að ég hafði lesið hana í Þjóðviljanum. Ummæli hæstv. forsrh. og fleiri fulltrúa á þingi Norðurlandaráðs í tilefni af ræðunni hef ég hins vegar enn ekki fengið.
Ástæða er til þess að endurtaka hér í dag þær spurningar, sem ég lagði í gær fyrir þá ráðh., sem þá voru viðstaddir, vegna þess að nú er hér kominn til þings hæstv. forsrh., sem sjálfur var staddur á fundi Norðurlandaráðs. Ýmis efnisatriði ræðu hæstv. ráðh. Magnúsar Kjartanssonar verða væntanlega rædd hér á þingi síðar. Spurningar mínar í gær voru þessar:
Í fyrsta lagi: Voru ummæli hæstv. ráðh. Magnúsar Kjartanssonar, þau sem hann hafði uppi á fundi Norðurlandaráðs, sögð með samþykki ríkisstj.? Ef svo var ekki, voru þau þá sögð með vitund ríkisstj.? Ef hvorugu þessu var til að dreifa, hver verða þá viðbrögð ríkisstj. við þessum ummælum?
Í öðru lagi gerði ég að umtalsefni þær fregnir, sem fluttar höfðu verið í Ríkisútvarpinu um dagskrá og umræðuefni á utanríkisráðherrafundi hér í Reykjavík í sambandi við hina opinberu heimsókn norska utanrrh., en þar bar ekki saman fregnum frá sjálfum hæstv. utanrrh. og frá Noregi um það, hvort varnarmál yrðu rædd á þeim fundi eða ekki. Um það væri gott að fá upplýsingar, sem fram væru bornar hér á Alþingi.
Ég vil aðeins minna á eitt atriði í sambandi við þessa ræðu, sem mér finnst nauðsynlegt að forma raunar sem viðbótarspurningu, en það atriði kom sérstaklega í ljós, þegar ræðan var lesin nú í morgun. Það hafði komið fram hjá einum talsmanni íslendinga á Norðurlandaráðsfundinum, að ummæli Magnúsar Kjartanssonar væru ekki sögð í umboði íslensku ríkisstj. Það var raunar hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason, sem það sagði. Hins vegar voru ummæli í þessari ræðu þess eðlis, að það er augljóst, að hæstv, ráðh. hefur talið sig hafa umboð ríkisstj. til að fara með þau, og það gengur í berhögg við það, sem hæstv. sjútvrh. sagði hér í gær, þar sem hann sagði, að Magnús Kjartansson hefði talað sem einstaklingur í þessari ræðu, en ekki sem ráðh. fyrir hönd ríkisstj. Samkv. Þjóðviljanum í morgun, þar sem ræðan er prentuð orðrétt í íslenskri þýðingu, sagði Magnús Kjartansson, með leyfi hæstv. forseta:
„Hins er ekki að dyljast, að ríkisstj. Íslands finnst hún hafa haft ákaflega lítinn stuðning frá ríkisstjórnum annarra Norðurlanda í þessu örlagaríka máli“ — og var þá átt við herstöðvamálið.
Af þessari setningu er augljóst, að hæstv. ráðh. telur sig tala í umboði ríkisstj., og vil ég leyfa mér að vænta þess, að hæstv. forsrh, gefi skýringu á þessu.