25.02.1974
Neðri deild: 66. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2332 í B-deild Alþingistíðinda. (2098)
240. mál, neyðarráðstafanir vegna jarðelda á Heimaey
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Þingfl. Alþfl. studdi í fyrra frv., sem var samþ. shlj, hér á hinu háa Alþingi, um neyðarráðstafanir vegna jarðelda á Heimaey og fagnaði því mjög, að algjör samstaða skyldi nást meðal allra 60 alþm. um þær ráðstafanir, sem í því frv. fólust.
Nú hefur n. skipuð fulltrúum allra 6 þingfl. samið það frv., sem hér er til umr., og styður þingfl. Alþfl. framgang þess af heilum hug. Það er sjálfsagt að standa við þær skuldbindingar, sem Alþingi tókst á hendur með samþ. l. í fyrra, og þetta frv. miðar að því, að unnt sé að standa við þær skuldbindingar. Að skoðun minni er ekki þörf á því, að þetta mál gangi til n., þingfl. Alþfl. fyrir sitt leyti er reiðubúinn til að greiða því atkvæði án athugunar í nefnd.
Eins og fram kemur í grg. fyrir frv. og fram kom einnig í ræðu hv. frsm., var ágreiningur um það í n., hvernig ráðstafa skuli tolltekjum og söluskattstekjum af Viðlagasjóðshúsunum, þ.e.a.s. þeim húsum, sem frændþjóðir okkar á Norðurlöndum gáfu til uppbyggingar í Vestmannaeyjum. 3. nm, vildu, að tolltekjur og söluskattur, sem féllu til við innflutning húsanna, rynnu í ríkissjóð, en 3 nm., við hv. þm. Ingólfur Jónsson og hv. þm. Bjarni Guðnason, teljum eðlilegt, að tolltekjur og söluskattstekjur af innflutningi húsanna renni til Vestmanneyinga sjálfra, þ.e.a.s. í Viðlagasjóð. Hins vegar varð samkomudag um það, sem sjálfsagt er að standa við, að blanda umr. um þetta ágreiningsefni ekki inn í umr. um þetta mál. Á morgun mun verða lagt fyrir hv. Nd. frv. um, að aðflutningsgjöld og söluskattur af þeim húsum, sem flutt hafa verið inn vegna jarðeldanna í Heimaey eða flutt kunna að verða inn fyrir árslok 1975, skuli renna í Viðlagasjóð til uppbyggingar í Vestmannaeyjum.
Þessum fáu orðum mínum vildi ég ljúka með því að láta í ljós einlæga gleði og ánægju yfir því, hversu vel hefur tekist til um umbyggingarstarfið í Vestmannaeyjum, og vona, að svo megi áfram verða, og ég óska Vestmanneyingum öllum alls hins besta í því sambandi.