26.02.1974
Neðri deild: 67. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2351 í B-deild Alþingistíðinda. (2116)

119. mál, skipulagslög

Stefán Gunnlaugsson:

Herra forseti. Við flm. þessa frv., sem hér er til umr., sem viðstaddir vorum hér í d. í gær, höfum fallist á að verða við óskum hæstv. ráðherra um að gera breytingu á 2. gr. frv. á þá leið, sem hann hefur óskað eftir, þannig að 2, gr. orðist svo: „Lög þessi öðlast gildi 1. jan. 1975.“ Að þessari brtt. standa Stefán Gunnlaugsson, Ólafur G. Einarsson, Ágúst Þorvaldsson og Lárus Jónsson.