28.02.1974
Sameinað þing: 62. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2417 í B-deild Alþingistíðinda. (2222)

214. mál, fjölgun starfsmanna í stjórnarráðinu

Fyrirspyrjandi (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Æskilegt er, að upplýst verði, hver hefur orðið fjölgun starfsmanna í stjórnarráðinu á undanförnum árum. Þess vegna hef ég leyft mér að beina þeirri fsp. til hæstv. fjmrh., hversu margir starfsmenn hafi verið í stjórnarráðinu annars vegar 1. júlí 1971, þegar hæstv. ríkisstj. tók við völdum, og hins vegar 1. jan. s.l. Hef ég beðið um grg. fyrir því, hversu margir fastráðnir starfsmenn hafi verið í hverju rn. á hvorum tímanum um sig og hversu margir lausráðnir.