12.03.1974
Neðri deild: 79. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2697 í B-deild Alþingistíðinda. (2439)

247. mál, skattaleg meðferð verðbréfa

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Fjh: og viðskn. d. hefur athugað þetta frv. Sams konar ákvæði voru áður í l. um heimildir fyrir ríkisstj. til þess að taka lán. Nú voru þessar heimildir felldar inn í fjárl. Þess vegna er nauðsynlegt að setja um þetta sérstök lög. Nú er jafnframt gert ráð fyrir því, sbr. 3. gr., að þessi ákvæði gildi áfram, þar til öðruvísi verður ákveðið, en áður fylgdu þau heimildarlögum hverju sinni.

Þetta frv. var afgreitt shlj. frá Ed., og afgreiðsla fjh: og viðskn. er einnig shlj., en n. leggur til, að frv. verði samþykkt.