12.03.1974
Sameinað þing: 65. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2702 í B-deild Alþingistíðinda. (2452)

416. mál, landshlutaáætlun fyrir Norður-Þingeyjarsýslu

Forsrh:

(Ólafur Jóhannesson): Herra forseti. Mér eru ekki tiltækar upplýsingar um það, sem hv. 2. þm. Norðurl. e. spurði um, og get þess vegna ekki gefið nein svör við því. En eins og kom fram í þeim upplýsingum, sem ég fékk frá áætlanadeildinni, segir hún, að það hafi verið haft viðtækt samráð við heimamenn um gerð þessara áætlunardraga a.m.k., ef þarna er ekki um fullkomna áætlun að ræða, sem enn virðist alls ekki vera, þar sem talað er um frumskýrslu.