18.03.1974
Neðri deild: 86. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2956 í B-deild Alþingistíðinda. (2627)

115. mál, heimilishjálp í viðlögum

Frsm. (Garðar Sigurðsson):

Herra forseti. Á þskj. 474 liggur fyrir nál. frá félmn. hv. d. Félmn. hefur rætt þetta mál á allmörgum fundum sínum. Við skoðun á þeim lögum, sem frv. þetta er flutt til breyt. á, sýnist okkur nm., að þar væru fullar heimildir til þess að veita þá hjálp, sem faríð er fram á í þessu frv. Hins vegar hefur komið í ljós, að skilningur ráðamanna hefur ekki verið sá. Þess vegna féllust nm. á að færa þessa breytingu inn í lögin.

N. leggur til. að frv. verði samþykkt með þeim breyt., sem prentaðar eru á fyrrnefndu þskj.