19.03.1974
Sameinað þing: 68. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2969 í B-deild Alþingistíðinda. (2645)
48. mál, bættar vetrarsamgöngur
Frsm. (Lárus Jónsson):
Herra forseti. Allshn. hefur rætt till. til þál. á þskj. 50 um bættar vetrarsamgöngur í snjóþungum byggðarlögum. N. hefur gefið út svofellt nál.:
„Allshn. hefur fjallað um till. til bál. á þskj. 50 um bættar vetrarsamgöngur í snjóþungum byggðarlögum. N. samþykkir að mæla með samþykkt till. óbreyttrar. Bjarni Guðnason var fjarverandi afgreiðslu málsins.“
Ég held, að ég þurfi ekki að hafa fleiri orð um þetta. Það var gerð ítarleg grein fyrir þessu nauðsynjamáli, þegar haldin var fyrir því framsaga, og einnig kemur það fram í grg. málsins. Ég þakka meðnm. mínum í allshn. fyrir jákvæða afstöðu til þessa máls og endurtek það, að n. mælir með því, að till. verði samþykkt óbreytt.