19.03.1974
Sameinað þing: 68. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2969 í B-deild Alþingistíðinda. (2647)

96. mál, breyting á fasteignamatslögum og lögum um sambýli í fjölbýlishúsum

Frsm. (Bragi Sigurjónsson):

Herra forseti. Mál þetta, sem hér er til umr., um athugun á fasteignamatsl. og l. um sambýli í fjölbýlishúsum, hefur verið fyrir allshn., og n. hefur orðið sammála um að mæla með samþykkt þessarar þáltill. óbreyttrar. Einn nm. var fjarstaddur við afgreiðsluna, Bjarni Guðnason.