18.10.1973
Sameinað þing: 4. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 21 í B-deild Alþingistíðinda. (27)

Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana

Forseti (Eysteinn Jónsson) :

Umræðan skiptist í tvær umferðir, þannig, að í fyrri umferð hefur forsrh. til umráða allt að hálfri klukkustund og fulltrúar annarra þingflokka en forsrh. 20 mínútur hver, auk þess fær Bjarni Guðnason til umráða 15 mínútur. Í síðari umferð hefur hver þingflokkur 10 mínútur til umráða. Röð flokkanna verður þessi: Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Samtök frjálslyndra og vinstri manna og Alþýðubandalagið. Bjarni Guðnason 3. landsk. þm. talar síðastur í fyrri umferð. Ræðumenn auk forsrh. verða þessir: Af hálfu Framsfl. talar Vilhjálmur Hjálmarsson, 5. þm. Austf., í síðari umferð. Af hálfu Alþfl. talar Gylfi Þ. Gíslason, 7. þm. Reykv., í fyrri umferð og Benedikt Gröndal, 8. landsk. þm., í síðari umferð. Af hendi Sjálfstfl. tala þeir Geir Hallgrímsson, 2. þm. Reykv., í fyrri umferð og Gunnar Thoroddsen, 5. þm. Reykv., í síðari umferð. Fyrir SF tala þeir Björn Jónsson félmrh. í fyrri umferð og Magnús T. Ólafsson menntmrh. í síðari umferð. Loks tala af hálfu Alþb. Lúðvík Jósepsson sjútvrh. í fyrri umferð og Magnús Kjartansson iðnrh. í síðari umferð. Hefst þá umræðan og tekur hæstv. forsrh. til máls.