28.03.1974
Neðri deild: 92. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3191 í B-deild Alþingistíðinda. (2875)

237. mál, vöruhappdrætti fyrir Samband íslenskra berklasjúklinga

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þetta frv. er um fjölgun hlutamiða í vöruhappdrætti Sambands íslenskra berklasjúklinga. Fjh: og viðskn. er sammála um það, að sambandið hafi enn um sinn ærin verkefni við að byggja upp vinnuaðstöðu fyrir þá, sem ekki mega sín á almennum vinnumarkaði. Leggur n. til, að frv. verði samþ. óbreytt.