28.03.1974
Neðri deild: 93. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3194 í B-deild Alþingistíðinda. (2885)

289. mál, lántökuheimild fyrir ríkissjóð

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Fjh: og viðskn. beggja þd. héldu sameiginlegan fund í morgun um þetta mál. Þar voru komnir til viðtals og til þess að gefa upplýsingar Helgi Bergs, form. stjórnar Viðlagasjóðs, og Björn Tryggvason, aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Íslands. Gáfu þeir ýmsar upplýsingar um málið. Eftir að n. höfðu fjallað um þetta á sameiginlegum fundi, hélt fjh.- og viðskn. þessarar hv. d. sérstakan fund um málið og ákvað að mæla með því, að frv. verði samþykkt óbreytt.