29.03.1974
Neðri deild: 95. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3250 í B-deild Alþingistíðinda. (2954)

100. mál, kaupstaðarréttindi til handa Dalvíkurkauptúni

Frsm. (Stefán Valgeirsson):

Herra forseti. Það er alveg rétt, sem hv. þm. Pálmi Jónsson sagði hér, að í grg. með þessu frv., er ekki um það getið, að þetta mál hafi komið fyrir sýslunefnd Eyjafjarðarsýslu. En samt sem áður hefðum við aldrei flutt þetta mál, ef það hefði ekki legið fyrir samþykki sýslun. um þetta málefni. Og þó að ég hafi það ekki hér í höndum, þá liggur fyrir samþykkt sýslun. um það, að hún mæli með samþykkt þessa frv.