05.04.1974
Neðri deild: 102. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3564 í B-deild Alþingistíðinda. (3178)

181. mál, kaupstaðarréttindi til handa Grindavíkurhreppi

Frsm. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Það stendur eins á með þetta mál og það frv., sem rétt í þessu var afgreitt. Það er komið frá Ed., og tók félmn. það til umr. og varð sammála um að mæla með samþykkt frv. óbreytts.