06.11.1973
Sameinað þing: 13. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í B-deild Alþingistíðinda. (321)
356. mál, sala Birningsstaða í Laxárdal
Fyrirspyrjandi (Bragi Sigurjónsson):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. landbrh, upplýsingarnar, sem ég hafði raunar fyrir mér á skjali. En mig langar að láta eitt koma hér fram, að hinn nýi óðalseigandi að Birningsstöðum er 73 ára gamall. Hann hefur aldrei kvænst og aldrei átt neinn afkomanda. Hvers vegna er hann að kaupa þetta sem óðal? Það væri umhugsunarefni.
Annað, sem mér finnst ekkert fjarri því að láta koma fram, er, að örfáum dögum eftir að kaupin fóru fram, fékk þessi ungi, blómlegi óðalseigandi, 73 ára gamall, sem hafði aldrei kvænst, aldrei átt börn, lán úr veðdeild Búnaðarbankans út á þessa nýju óðalsjörð, 200 þús. kr., þ. e. a. s. hann fær töluvert hærra lán en hann þarf að kaupa jörðina á. Góður vasapeningur fyrir óðalseigandann.