18.04.1974
Sameinað þing: 75. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3702 í B-deild Alþingistíðinda. (3279)

299. mál, nýting innlendra orkugjafa

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég kvaddi mér aðallega hljóðs til þess að fá nokkru fyllri upplýsingar frá hæstv. orkumrh. en fram komu í hans frumræðu, en mun þangað til hann kemur, ræða málið nokkuð almennt. (Forseti: Ég vil aðeins taka fram, að ég get gjarnan bara hinkrað með þessa umr. og tekið annað mál. uns ráðh. kemur, ef þm. kemur það betur.)