24.04.1974
Sameinað þing: 78. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3924 í B-deild Alþingistíðinda. (3468)

116. mál, gjöf Jóns Sigurðssonar

Frsm. (Geir Gunnarsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur fjallað um þáltill. á þskj. 140 um „Gjöf Jóns Sigurðssonar“ og ekki séð ástæðu til að afla umsagnar um till. Við afgreiðslu fjárl. fyrir þetta ár var samþykkt sérstök brtt. í samræmi við efni þessarar þáltill., þannig að fjárveiting til „Gjafar Jóns Sigurðssonar“ er í núgildandi fjárl. sú, sem að er stefnt með þáltill. Fjvn. leggur einróma til, að þáltill. verði samþykkt og með því verði lýst yfir vilja þessa þings um, hvert skuli, þar til öðruvísi kynni að verða ákveðið, verða framlag til sjóðsins á fjárl., jafnframt því sem rýmkaðar verði heimildir til notkunar fjárins, eins og fram kemur í þáltill.