24.04.1974
Sameinað þing: 78. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3925 í B-deild Alþingistíðinda. (3475)

258. mál, búseta á Hólsfjöllum og á Efra-Fjalli

Frsm. (Vilhjálmur Hjálmarsson):

Herra forseti. Þegar þessi till. var hér til umr., var gerð mjög ítarleg grein fyrir henni af hálfu fyrsta flm., og grg, till. er einnig ítarleg. Ég sé því ekki ástæðu til að hafa þessa framsögu aðra en þá að greina frá því, að fjvn. hefur fjallað um till. og leggur einróma til. að hún verði samþykkt óbreytt.