24.04.1974
Sameinað þing: 78. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3926 í B-deild Alþingistíðinda. (3479)

120. mál, rannsókn á reki gúmbjörgunarbáta

Frsm. (Ásberg Sigurðsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur haft þáltill. á þskj. 146 um rannsókn á reki gúmbjörgunarbáta o.fl. til athugunar og orðið sammála um að mæla með samþykkt hennar óbreyttrar.