29.04.1974
Sameinað þing: 79. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3961 í B-deild Alþingistíðinda. (3507)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Eysteinn Jónsson):

Mér hefur borist svo hljóðandi bréf:

„Reykjavík, 26. apríl 1974.

Formaður þingflokks SF hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Samkv. beiðni Björns Jónssonar, 6. þm. Norðurl. e., sem er í sjúkrahúsi, leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. l. um kosningar til Alþ. að óska þess, að 1. varamaður SF í Norðurl. e., Benóný Arnórsson bóndi, taki sæti á Alþ. í forföllum hans.“

Þetta er yður, hæstv. forseti, hér með tilkynnt.

Ásgeir Bjarnason,

forseti Ed.

Benóný Arnórsson hefur áður setið þingbekk á þessu kjörtímabili og kjörbréf hans verið samþykkt, og býð ég hann velkominn til starfa.