29.04.1974
Neðri deild: 113. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3980 í B-deild Alþingistíðinda. (3588)

15. mál, orkulög

Frsm. minni hl. (Ingólfur Jónsson):

Herra forseti. Er ekki hæstv. iðnrh. hér inni? Það voru aðeins örfá orð, sem ég vildi segja í tilefni af ræðu hæstv. ráðh., en ef hann getur ekki verið við, þá sé ég ekki ástæðu til þess, en vildi þó mælast til, að málinu yrði frestað, þangað til ráðh. getur verið við.