07.05.1974
Sameinað þing: 86. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4237 í B-deild Alþingistíðinda. (3820)

236. mál, framkvæmd iðnþróunaráætlunar

Frsm. (Pétur Pétursson):

Herra forseti. Atvmn. hefur haft þessa till. til meðferðar og rætt hana á fundum sínum og hefur orðið sammála um að mæla með samþykkt hennar. Till. er á þskj. 400, um framkvæmd iðnþróunaráætlunar. Till. fjallar um að skora á ríkisstj. að hraða framkvæmd iðnþróunaráætlunar. Eftir að hún var flutt, hefur komið fram frv. um Iðntæknistofnun ríkisins. Þrátt fyrir það telur n. sjálfsagt, að þessi till. verði samþ. og þessi áskorun gerð á ríkisstj.