07.05.1974
Neðri deild: 121. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4258 í B-deild Alþingistíðinda. (3849)

286. mál, ávana- og fíkniefni

Svava Jakobsdóttir:

Herra forseti. Svo sem fram kemur í nál. á þskj. 846, er allshn. sammála um að mæla með því, að frv. til l. um ávana- og fíkniefni verði samþ. Einn hv. þm., Pétur Pétursson, var fjarstaddur afgreiðslu málsins.

Þess skal getið, að mál þetta hefur þegar hlotið afgreiðslu í Ed.