07.05.1974
Neðri deild: 121. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4258 í B-deild Alþingistíðinda. (3851)

274. mál, almenn hegningarlög

Svava Jakobsdóttir:

Herra forseti. Þetta frv. er í nánum tengslum við frv. til l. um ávana- og fíkniefni. Allshn. hefur rætt frv. og er sammála um að mæla með því, að það verði samþ. óbreytt.