07.05.1974
Neðri deild: 122. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 4261 í B-deild Alþingistíðinda. (3862)

228. mál, gatnagerðargjöld

Frsm. (Hannibal Valdimarsson):

Herra forseti. Þetta mál er komið frá hv. Ed., og voru þar gerðar á því tvær fremur smávægilegar breyt. N. athugaði frv. á einum fundi og varð sammála um að mæla með því, að það yrði samþ. óbreytt eins og það kom frá hv. Ed. Þess skal getið, að 2 nm. voru fjarverandi afgreiðslu málsins, þeir Gylfi Þ. Gíslason og Garðar Sigurðsson. N. leggur til. að málið verði afgr. óbreytt.