22.10.1973
Sameinað þing: 5. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í B-deild Alþingistíðinda. (39)

Varamaður tekur þingsæti

Forseti (Eysteinn Jónsson) :

Borist hefur svo hljóðandi bréf:

Reykjavík, 22. okt. 1973.

Pétur Pétursson, 2. landsk. þm., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég vegna sérstakra anna mun ekki geta sótt þingfundi á næstunni, leyfi ég mér að biðja um fjarvistarleyfi og með skírskotun til 138. gr. 1. um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður landsk. þm. Alþfl., Bragi Sigurjónsson bankaútibússtjóri, taki sæti á Alþ. í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Gils Guðmundsson,

forseti Nd.

Bragi Sigurjónsson hefur áður setið þingbekk á þessu kjörtímabili og hans kjörbréf verið skoðað, og tekur hann sæti sitt og býð ég hann velkominn til starfa.