13.11.1973
Sameinað þing: 18. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 588 í B-deild Alþingistíðinda. (443)

92. mál, bráðabirgðasamkomulag við Bretland um veiðar breskra togara

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Það kom fram í ræðu hv. þm. Jónasar Árnasonar í nótt, að hann taldi samkomulag þetta meingallað og að sumu leyti grábölvað. Undir þessa skoðun tók ég í ræðu minni og hafði mörg rök þar um. Viðvíkjandi þeirri þáltill., sem hér er til atkvgr., um staðfestingu á svokölluðu samkomulagi, sem hæstv. forsrh. gerði við fulltrúa hennar hátignar, þá tel ég galla samkomulagsins vera þyngri en kostina, og því segi ég nei.