13.11.1973
Sameinað þing: 19. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í B-deild Alþingistíðinda. (457)

33. mál, heimili drykkjusjúklinga á Vífilsstöðum

Fyrirspyrjandi (Pétur Sigurðsson):

Herra forseti. Fsp. mín til hæstv. heilbrrh. er í tveim liðum og er á þessa leið:

„1. Hver er áætlaður rúmmetrafjöldi í hinu fyrirhugaða heimili drykkjusjúklinga á Vífilsstöðum, og hve marga sjúklinga mun það rúma?

2. Hver er áætlaður kostnaður pr.m3?“